Með BlackBerry Professional Software er mögulegt að tengja allt að 30 notendur við tölvukerfi fyrirtæksins í gegnum forrit sem keyrir á sömu tölvu og póstþjónn fyrirtækis. Engin þörf er því á auka fjárfestingu í vél- búnaði. Ef þörf er á fleiri notendum er hægt að uppfæra hugbúnaðinn í BlackBerry Enterprise Server og fjölga notendum eftir þörfum.
BlackBerry Professional Software hugbúnaður stýrir þráðlausum samskiptum á bak við eldvegg fyrirtækisins og tryggir öryggi gagna með Triple DES öryggisdulkóðun. BlackBerry Professional Software veitir miðlægan aðgang að kerfisumsjón fyrir tæknimenn og gerir kleift að nýta til fulls fjárfestingar í upplýsingatækni.
BlackBerry sameinar allt sem fyrirtæki þurfa til að ná framúrskarandi nýtingu þráðlausra samskipta, enda er BlackBerry allt í senn fullkomið tæki, þráðlaust netsamband og samhæfing við pósthólf, auk þess sem vaxandi fjöldi fyrirtækja þróar hugbúnað til notkunar í BlackBerry.
BlackBerry sendir sjálfvirkt allan tölvupóst úr pósthólfinu þínu til BlackBerry tækisins og gerir þér þannig kleift að bregðast strax við mikilvægum skilaboðum og skoða allar helstu gerðir viðhengja.
BlackBerry er tæknilega fullkominn og endingargóður GSM sími sem gefur kost á símtölum í bið, framsendingu símtala og símafundum auk SMS. Þú getur notað BlackBerry eins og hefðbundinn síma eða heyrnartól svo þú getir skoðað gögn á meðan þú talar.
Með BlackBerry ertu með dagbókina þína og verkefnalista (tasklist) í vasanum, allt samhæft þráðlaust við nýjustu upplýsingar í tölvunni þinni.
BlackBerry er með innbyggðan vafra svo þú komist hvar og hvenær sem er á vefinn. Aðgangur að innri vef fyrirtækja er einnig mögulegur. Vefurinn er þannig alltaf innan seilingar.
Ýmsir möguleikar eru á því að nota BlackBerry til að ná í mikilvæg gögn úr vinnuumhverfinu, s.s. upplýsingar úr sölu- og afgreiðslukerfum, verðskrár, stöðu pantana o.s.frv.
BlackBerry er þróuð Java™ lausn og því eru möguleikarnir óþrjótandi. Fyrirtæki geta sjálf þróað eigin sérlausnir fyrir þarfir sínar eða fengið tilbúnar lausnir hjá Java söluaðilum.
BlackBerry er samþætt við þau kerfi sem eru þegar til staðar og er því hagkvæm lausn fyrir tæknideildir til að stjórna þráðlausum aðgangi að gögnum, auk þess sem auðvelt er að fjölga eða fækka BlackBerry notendum í fyrirtækinu eftir því sem aðstæður breytast.
BlackBerry Enterprise Solution dulkóðar allan tölvupóst með Triple DES dulkóðun. Gögn eru dulkóðuð alla leið á milli BlackBerry tækisins og BlackBerry Enterprise Server. Ef BlackBerry tæki týnist eða loka þarf því af öðrum ástæðum geta tæknimenn fyrirtækisins læst tækinu og hreinsað út allar upplýsingar með einföldum hætti. Einnig er hægt að takmarka aðgang eftir því sem þurfa þykir.
Ertu í vanda eða vantar þig hjálp? Hér eru algengar spurningar og svör.
Þú færð aðstoð í síma 1414. Kíktu á spurt og svarað eða sendu okkur fyrirspurn.