3rd
Tengileiðir
Hefðbundin símalína
Hefðbundin símalína með eina talrás í gegnum almenna símkerfið. Hentar fyrirtækjum sem þurfa aðeins eina símalínu inn í fyrirtækið.
ISDN
Með ISDN fást tvær talrásir og því hægt að stofna til tveggja símtala á sama tíma. T.a.m. getur greiðsluposi hringt inn greiðslu jafnvel þótt verið sé að tala í síma fyrirtækisins. Hægt er að panta mismunandi fjölda ISDN lína inn í fyrirtækið til að fjölga samtímasímtölum. Hægt er að tengja ISDN línur í símstöðvar fyrirtækja og stjórna með því umferðinni innan fyrirtækisins og flutningi milli síma.
Stofntengingar
Stofntengingar (PRI) eru stærri útgáfa ISDN tenginga þar sem boðið er upp á 15 eða 30 talrásir á sama tíma. Sé keyptur aðgangur að stofntengingu sér viðskiptavinur um rekstur eigin símstöðvar og tækja. Samskonar tegundir stofntenginga eru SIP tengingar, sem er símstöðvagátt tengd við MetroNet Vodefone. SIP stofntengingar byggja á VoIP tækni.
Á öllum SIP þjónustutengingum frá Vodafone er ákveðin bandvídd tryggð fyrir símtöl eða rauntímaþjónustu (QoS). Með því eru símtöl sett í hærri forgang en aðrar tengingar á netinu. Upplifun viðskiptavinar verður því eins góð og kostur er.
Símaský Vodafone
Talsímalausn sem hentar fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum. Í Símaskýi Vodafone er símstöðin hýst hjá Vodafone sem kemur í veg fyrir allan fjárfestingar- og rekstrarkostnað við eigin símstöð. Símaský Vodafone stækkar og minnkar með fyrirtækinu, enginn stofnkostnaður og aðeins greitt fast verð fyrir hvern notanda. Kynntu þér Símaskýið.


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?