3rd
Símaský Vodafone
Símaský Vodafone
- hýst símstöðvalausn
Símaský er talsímalausn sem hentar fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum. Í símaskýi er símstöðin hýst hjá Vodafone. Það kemur í veg fyrir allan fjárfestingar- og rekstrarkostnað við eigin símstöð. Einfalt er að bæta við eða loka númerum eftir þörfum og sér Vodafone um alla umsjón kerfisins.
Helstu kostir
Helstu kostir
Hagkvæmni
- Enginn kostnaður við eigin símstöð og búnaður hýstur hjá Vodafone
- Fastur kostnaður á hverja starfsstöð og kerfið getur því auðveldlega vaxið eða minnkað með fyrirtækinu
- Hægt að hafa IP síma erlendis sem virkar sem útibú og kostar ekkert að hringja á milli
- Engin þörf á sérstökum kerfisbúnaði eða tækjarými
- Enginn aukakostnaður vegna viðhalds eða uppfærslu símkerfis
- Enginn stofnkostnaður við símalínur - aðeins uppsetningarkostnaður á búnaði
Einfaldleiki
- Einfalt að tengja saman mörg útibú, sem öll hringja fyrir 0 kr. sín á milli.
- Allar breytingar eru einfaldar og engin þörf er á sérstökum tæknimanni innan fyrirtækisins
- Kerfisstjóri fyrirtækis hefur fullt vald yfir notendaumsýslu (eða sérfræðingur Vodafone sé þess óskað)
- Reksturinn er í höndum Vodafone sem sér um almennt viðhald og uppfærslur á kerfinu. Kostnaður sem getur hlotist af því fellur því ekki á fyrirtækið.
- Fastur mánaðarlegur kostnaður fyrir hvert símtæki
Öryggi
- Þar sem símstöðin er hýst af Vodafone en ekki fyrirtækinu sjálfu eru öryggisatriði í höndum Vodafone og starfsmenn fyrirtækisins geta einbeitt sér að sinni kjarnastarfsemi.
- Rannsóknir sýna fjölgun innbrota í símkerfi fyrirtækja en með Símaskýi eru hverfandi líkur á slíku.
- Sérfræðingar Vodafone eru til þjónustu reiðubúnir allan sólarhringinn
Þjónustuleiðir
Í öllum þjónustuleiðum er innifalinn ákveðinn grunnpakki sem hentar öllum notendum Símaskýs.
Grunnpakki
| Þjónusta í boði | Aðgerðir | Hópvinna |
|---|---|---|
| Hringiflutningur | Gefa símtal | Þriggja manna símafundur |
| Símtal bíður | Endurval | Veiða símtal |
| Ónáðið ekki | Viðmælandi geymdur | Vöktun á stöðu annars símtækis |
| Númerabirting | Skammval | Mörg númer á tæki |
| Beint innval | Tímastillingar á virkni | Deildaskipting |
| Fullkomið talhólfakerfi | Sjálfvirk lokunarskilaboð | Hóphringingar |
| Allar gerðir hringiflutninga | ||
| 4 línur á hvert tæki |
Símaský pakkar
| Símaský Vodafone 1 | Símaský Vodafone 2 | Símaský Vodafone 3 | |
|---|---|---|---|
| Grunnpakki | |||
| Skýrslugerð | |||
| GSM samþætting | |||
| Samþætting við Outlook | |||
| Vefsamþætting | |||
| Færanlegt skiptiborð |
Lyf og heilsa nota Símaský
„Við hjá Lyfjum og heilsu erum með tæplega 100 tæki í Símaskýi Vodafone. Við erum með skrifstofuna okkar og apótekin sem eru staðsett víðsvegar um landið allt tengt í sama kerfið. Við erum mjög ánægð með þjónustu Vodafone og veitir það okkur mikið öryggi að vita að símstöðin er hýst hjá Vodafone og þurfum við ekki að hafa áhyggjur af uppfærslu eða viðhaldi símkerfis.“
Einar S. Helgason, kerfisstjóri - IT hjá Lyf og heilsu. Í viðskiptum síðan 2005.


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?