3rd
Fundarsími Vodafone
Fundarsími Vodafone einföld lausn til að boða allt að 20 gesti á símafund, hvar og hvenær sem er. Símanúmer fundarsíma er 757 5000.
Fundarstjóri gefur þátttakendum upplýsingar um símanúmerið sitt (sá sem heldur fundinn), tíma sem fundur skal eiga sér stað og fjögurra stafa auðkennisnúmer.
Með fundarsíma Vodafone getur þú haldið símafund með allt að 20 gestum.
Fundur hefst
Ekki þarf að stofna fundinn sérstaklega áður en hann er haldinn, heldur hringja allir fundargestir í 757-5000 á tilsettum tíma, og verður fundurinn til í kerfinu þegar fyrsti þátttakandinn hringir inn (þarf ekki að vera fundarstjórinn). Fundarstjóri þarf því aðeins að ákveða fjögurra stafa auðkennisnúmer og upplýsa þátttakendur.
Mikilvægt er því að allir fundargestir hafi sömu upplýsingar um fundinn. Staðfesting er spiluð þegar nýr þátttakandi tengist símafundinum.
Þátttakandi yfirgefur svo fundinn með því að leggja á.
Einfaldar leiðbeiningar
- Fundarstjóri sendir leiðbeiningar á alla fundarmeðlimi. Það eina sem þarf er tímasetningin, 757 5000 númerið, númer fundarstjórans og loks fjögurra stafa auðkennisnúmer.
- Þátttakendur hringja í 757 5000, rita inn símanúmer fundarstjórans og fjögurra stafa auðkennisnúmerið.
- Fundarsíminn lætur vita ef nýir þátttakendur koma á fundinn.
Virkar fyrir alla, óháð staðsetningu
Hægt er að hringja í 757 5000 úr öllum símum og frá útlöndum, en þá er hringt í +354 757 5000.
Hagkvæmt
Verðskrá fyrir Fundarsíma Vodafone:
Upphafsgjald er 10,05 kr.
Mínútuverð er 5,02 kr.
Sama mínútuverð gildir hvort sem hringt er úr heimasíma eða farsíma.
Ekkert mánaðargjald né stofngjald er rukkað fyrir fundarsímann.


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?