Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra.

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Breytingar

Verðbreytingar 1. febrúar 2012

Þann 1. febrúar taka gildi breytingar á verðskrá, skilmálum og þjónustuframboði Vodafone.

Gamlar þjónustuleiðir, sem ekki hafa verið í sölu um langt skeið, verða lagðar niður enda falla nýrri þjónustuleiðir almennt mun betur að þörfum viðskiptavina. Áfram verður lögð áhersla á fjölbreytt úrval þjónustuleiða og góða þjónustu, enda er það yfirlýst markmið Vodafone að eiga ánægðustu viðskiptavini á Íslandi. Verðhækkunum er því stillt í hóf, en þær eru nauðsynlegar þar sem nær allir kostnaðarliðir í rekstri Vodafone hafa hækkað verulega á undanförnum misserum; laun og launatengd gjöld, skattar, hiti og rafmagn, húsnæði, vextir af lánum, ýmis rekstrarvara, aðkeypt þjónusta o.s.frv.

Vodafone hefur lagt sig fram við að hagræða í rekstrinum og fyrir vikið eru verðhækkanir mun minni en þær kostnaðarhækkanir sem áður eru nefndar. Meðalreikningur mun hækka um 5%, en við breytingar á verðskrá var kappkostað að verðin yrðu áfram vel samkeppnishæf.

Við bendum viðskiptavinum á, að þeir geta sparað umtalsvert með því að velja þjónustuleið sem hentar þeirra notkun. Við veitum að sjálfsögðu allar upplýsingar um notkunina, en yfirlit yfir hana er einnig aðgengilegt á Mínum síðum á Vodafone.is. Þar má m.a. sjá yfirlit yfir gagnaniðurhal heimilisins, í hvaða símanúmer mest er hringt og fleira sem hjálpar viðskiptavinum að meta hvaða þjónustuleið hentar best. Þá bendum við á, að með því að slá inn töluna 1010 í stað 00 þegar hringt er til útlanda er hægt að lækka kostnaðinn við útlandasímtöl um allt að 57%.

Kynntu þér 1010 og fleiri góð ráð til að minnka fjarskiptakostnaðinn á sparnaðarráðssíðu Vodafone.

Smelltu á hlekkina hér fyrir neðan til að sjá upplýsingar um verðbreytingarnar 1. febrúar 2012.

Verðbreytingar á heimasíma, farsíma, interneti og sjónvarpsþjónustu.

Verðbreytingar á símtölum í 118 og 1818.

Verðbreytingar á reikiþjónustu erlendis.

Upplýsingar um breytingar á þjónustu við fyrirtæki eru veittar í síma 599 9500.

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn