Lærðu á snjallsímann þinn

Langar þig að kunna betur á snjallsímann þinn? Stilla tölvupóst, finna sniðug forrit, læra betur á myndavélina? Vodafone býður viðskiptavinum persónuleg snjallsímanámskeið þeim að kostnaðarlausu.
Á námskeiðinu hittir þú ráðgjafa Vodafone sem sýnir þér helstu forrit, stillingar og virkni fyrir þinn síma, hvort sem um er að ræða Android, iPhone, Symbian eða BlackBerry snjallsíma.
Þú getur rætt hvað sem þú vilt um notkun símans. Margir vilja ábyggilega læra uppsetningu tölvupósts, hvernig á að setja upp og nota vinsælustu forritin og hvernig megi almennt nýta helstu eiginleika viðkomandi síma. Jafnframt getur ráðgjafinn sýnt hvernig setja á tónlist inn á símann, nota myndavélina rétt og nýta GPS-staðsetningartæknina, svo eitthvað sé nefnt – allt eftir því hvað þú vilt læra um símann þinn.
Hvert námskeið er 30 mínútna langt og er viðskiptavinum Vodafone að kostnaðarlausu. Það eina sem þú þarft að gera er að bóka tíma í einhverri af verslunum okkar í Skútuvogi, Smáralind eða Kringlunni og mæta með snjallsímann þinn.





























Athugasemdir