Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Heimsfrumsýning í Leigunni

Það verður stórviðburður í Vodafone Sjónvarpi á föstudaginn, en þá verður grínmyndin Tim and Eric’s Billion Dollar Movie heimsfrumsýnd í Leigunni.

Myndin verður ekki frumsýnd í kvikmyndahúsum hér á landi eða í Bandaríkjunum fyrr en 2. mars. Heimsfrumsýningin fer hins vegar fram á stafrænum myndbandaleigum næstkomandi föstudag, 27. janúar, og verður Ísland eina landið utan Bandaríkjanna sem tekur þátt í viðburðinum.

Þetta er í fyrsta sinn sem bandarísk Hollywood-kvikmynd er frumsýnd með þessum hætti og enn eitt dæmi um hversu öflugar og mikilvægar stafrænar myndbandaleigur á borð við Leiguna hjá Vodafone eru orðnar. Sífellt fleiri nýta sér þennan einfalda og þægilega möguleika til að horfa á kvikmyndir og þætti og greinilegt að framleiðendur í Hollywood eru farnir að leggja meiri áherslu á þessa dreifileið fyrir kvikmyndir sínar.

Snarklikkuð grínmynd
Tim and Eric’s Billion Dollar Movie er með rugludöllunum Tim Heidecker og Eric Wareheim sem hafa slegið rækilega í gegn vestra í sjónvarpsþáttunum Tim and Eric Awesome Show, Great Job! Í öðrum aðalhlutverkum eru stórstjörnurnar Will Ferrell, Zach Galifianakis, John C Reilly og Jeff Goldblum.

Ekki missa af þessu – kíkið á Leiguna í Vodafone Sjónvarpi á föstudaginn og takið þátt í heimsviðburði!

Athugasemdir

athugasemdir

Copyright © Vodafone    Skútuvogi 2    104 Reykjavík    Sími 599 9000    Fax 599 9001    Þjónustuver sími 1414    Hafðu samband    Skilmálar þjónustu

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn