Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Vodafone EM stöðin í loftið

Strákarnir okkar verða í eldlínunni á EM í handbolta í Serbíu næstu vikurnar. Á meðan EM stendur yfir munum við senda út Vodafone EM, sérstaka sjónvarpsstöð sem sendir út fjölda handboltaleikja dag hvern.

Vodafone, í samstarfi við RÚV, verður með sérstaka Vodafone EM sjónvarpsrás  þar sem sendir verða út fjölmargir leikir í opinni dagskrá. Vodafone EM stöðin verður aðgengileg á rás 97 hjá þeim sem eru með Vodafone Sjónvarp um ADSL, ljósleiðara eða örbylgju en dagskrá hennar verður einnig send út í háskerpu á rás 96 hjá þeim sem geta náð slíkum útsendingum (nánar um HD útsendingar okkar).

Vodafone EM stöðin er viðbót við handboltaumfjöllun RÚV á meðan á mótinu stendur, en leikir íslenska landsliðsins verða sendir út á hefðbundinni rás RÚV en í háskerpu á Vodafone EM HD stöðinni.

Á Vodafone EM stöðinni eru líka sýndir aðrir leikir sem RÚV hefur rétt á að sýna og verða framan af móti að jafnaði sýndir 2-3 leikir á dag. Í þeim tilvikum sem RÚV sendir aðeins út seinni hálfleik (að loknum kvöldfréttum) er fyrri hálfleikur sýndur á Vodafone EM.

Kíktu á litla EM vefinn okkar til að sjá hvaða leikir eru sýndir, fylgjast með úrslitum, stöðu í riðlum og mörgu fleira. Við erum líka með EM vef á rautt.is farsímavefnum.

Til að fá inn Vodafone EM stöðvarnar tvær þarf að framkvæma sjálfvirka leit á Digital Ísland myndlyklum (aðeins sýnileg þeim sem eru með móttöku um örbylgjuloftnet), en stöðvarnar koma sjálfkrafa inn hjá þeim sem eru með Amino myndlykla og móttöku um ADSL- eða ljósleiðaratengingar.

Athugasemdir

athugasemdir

Copyright © Vodafone    Skútuvogi 2    104 Reykjavík    Sími 599 9000    Fax 599 9001    Þjónustuver sími 1414    Hafðu samband    Skilmálar þjónustu

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn