Gagnamagnspakkar hagkvæmastir

Eftir verðbreytingar 1. febrúar verður hagkvæmast fyrir viðskiptavini sem nota gagnasendingar í farsíma reglulega að vera með sérstaka gagnamagnspakka í áskrift.
Þann 1. febrúar mun verð Dagnets í farsíma hækka úr 25 kr. í 90 kr. Dagnet er sú þjónustuleið sem notuð er fyrir gagnamagn í farsíma ef viðskiptavinur er ekki áskrifandi að sérstökum gagnamagnspakka.
Eftir þessa breytingu hentar Dagnetið eingöngu þeim sem nota netið í símanum örfáa daga í mánuði. Fyrir þá sem fara oftar á netið í farsímanum og sér í lagi fyrir þá sem eru með snjallsíma sem sækja gögn daglega á netið er mun hagkvæmara að bæta gagnamagnspakka við áskriftina eða frelsið. Við hvetjum því viðskiptavini sem hafa notað Dagnetið reglulega til að velja hagkvæmari gagnamagnsleið.
Fyrir verðbreytinguna verður öllum viðskiptavinum Vodafone sem hafa notað Dagnetið í farsíma síðustu mánuði sent SMS þar sem breytingin er ítrekuð og bent á að gagnamagnspakkar séu hagkvæmari. Fyrirhugaðar verðbreytingar 1. febrúar voru jafnframt tilkynntar í reikningum viðskiptavina í desember, hér á Vodafone.is 31. desember og aftur á reikningum viðskiptavina í janúar.
Ástæða þessarar breytingar er sú að Dagnetið var í upphafi hugsað sem tímabundin kynningarleið á fyrstu árum gagnanotkunar í farsímum. Sem slík hefur hún verið óhagkvæm í rekstri og því er nauðsynlegt að grípa til þessarar hækkunar.
Hagkvæmari leiðir en Dagnetið eru annars vegar að velja áskrift með inniföldu gagnamagni og hins vegar kaupa gagnamagnspakka. Minnsti gagnamagnspakkinn verður eftir 1. febrúar t.a.m. 300 MB og mun kosta 550 kr. á mánuði. Hér má finna yfirlit yfir gagnamagnspakka fyrir áskrift og hér fyrir gagnamagnspakka í frelsi.
Áskrifendur geta valið gagnamagnspakka á Mínum síðum Vodafone.is og í 1414 appinu ef þeir eru skráðir greiðendur farsímans. Frelsisnotendur geta keypt gagnamagnspakka á áfyllingarsíðunni. Einnig er hægt að senda beiðni um gagnamagnspakka með SMS í 1414, t.d. með texta á borð við ““Baetid 300 MB gagnamagnspakka vid thetta numer”, auk þess sem hægt er að panta gagnamagnspakka og fá nánari upplýsingar hjá þjónustufulltrúum Vodafone á Netspjallinu, með því að panta símtal, senda okkur tölvupóst á farsimi@vodafone.is eða hringja í 1414.




























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?