Áskrift sem hentar snjallsímanum

Stærsta stökkið þegar skipt er úr hefðbundnum farsíma í snjallsíma er að síminn sækir gögn á netið í meiri mæli. Þá skiptir máli að gera ráð fyrir gagnamagninu – einfaldast er að hafa það innifalið í áskriftinni!
Þrír meginmöguleikar eru í boði varðandi gagnamagn. Að vera með gagnamagnið innifalið í áskriftinni, að bæta gagnamagnspakka við áskriftina eða frelsið, eða nota svokallað Dagnet.
Þægilegast og ódýrast í mörgum tilvikum er að vera með gagnamagn innifalið í áskriftinni. Í farsímaáskriftinni Vodafone 250 er 100 MB gagnamagn innifalið á mánuði og er það væntanlega ein af ástæðunum fyrir því að hún er sú vinsælasta hjá Vodafone. Mörgum snjallsímaeigendum duga vel 100 MB á mánuði, þótt það sé ekki nægilega mikið fyrir miðlungs- og stórnotendur.
Auk gagnamagnsins eru 250 mínútur innifaldar á mánuði í farsíma óháð kerfi og 250 SMS, einnig óháð kerfi. Hjá viðskiptavinum í Vodafone Gull sem eru með þessa áskriftarleið fjölgar mínútum og SMS-um í 300. Vodafone 250 kostar 2.980 kr. á mánuði en hægt er að panta sér áskrift að Vodafone 250 eða öðrum áskriftarleiðum hér með því að hafa samband við þjónustuver Vodafone. Tvær aðrar áskriftarleiðir eru einnig með innifalið gagnamagn, Vodafone 500, sem er einnig með 100 MB innifalin og Vodafone 1000, sem er með 500 MB innifalin. Kynntu þér málið betur á yfirlitssíðunni fyrir farsímaáskrift.
Til að átta sig á því hversu mikið gagnamagn maður þarf er einfaldast að skrá sig inn á Mínar síður hér á Vodafone.is, smella á „Gagnamagn“ og fletta svo upp gagnamagnsnotkun síðustu mánaða.
Gagnamagnspakkar og Dagnet
Annar möguleiki er að kaupa sérstaka gagnamagnspakka, en þeir eru frá 300 MB í 5 GB á mánuði og henta sérstaklega vel fyrir miðlungs- og stórnotendur á gagnamagni. Við blogguðum um gagnamagnspakka fyrir farsíma fyrir ekki svo löngu.
Þriðji möguleikinn, Dagnetið, er fyrir þá sem eru hvorki með gagnamagn innifalið í áskrift né gagnamagnspakka. Það virkar þannig að ef notað er eitthvað gagnamagn innan dagsins bætist ákveðið daggjald við reikninginn (eða dregst af frelsisinneign) þann daginn. Hvert daggjald dugar fyrir 5 MB af gögnum og gildir einungis innan viðkomandi dags. Ef farið er yfir 5 MB innan dagsins bætist annað daggjald við og svo koll af kolli. Frá 1. febrúar næstkomandi verður daggjaldið 90 kr., þannig að það er einungis hentugur valkostur fyrir þá sem fara örsjaldan á netið í símanum í hverjum mánuði. Minnsti gagnamagnspakkinn mun kosta 550 kr. frá 1. febrúar og því þarf ekki að nota netið marga daga í mánuði til að það borgi sig að kaupa hann.
Þannig að ef þú notar tölvupóst í símanum, ferð reglulega á netið í honum eða ert með forrit sem hafa leyfi til að sækja gögn á netið mælum við eindregið með áskrift með inniföldu gagnamagni eða gagnamagnspakka. Þú getur breytt þjónustuleiðinni þinni með því að hafa samband við þjónustuver Vodafone í síma 1414, með Netspjallinu eða með því að panta símtal.
Ef þú ert með farsímaáskrift getur þú pantað gagnamagnspakka á Mínum síðum á Vodafone.is, en frelsisnotendur þurfa að hafa samband við þjónustuver Vodafone, 1414. Hægt er t.d. að hafa samband við þjónustuverið með því að senda SMS úr viðkomandi símanúmeri í númerið 1414 með texta á borð við: “Baetid 1 GB gagnamagnspakka vid thetta numer”.




























Athugasemdir