Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Hringdu til útlanda fyrir 8,9 kr./mín

Hringir þú oft til útlanda? Mundu þá eftir að nota forskeytið 1010 í staðinn fyrir 00, því þannig lækkar mínútugjaldið og verður einungis 8,9 kr. mínútan úr heimasíma í heimasíma til okkar helstu viðskiptalanda.

1010 er hagkvæmasti kosturinn í útlandasímtölum hjá Vodafone. Með þessum valkosti greiðir þú einungis 8,9 kr. á mínútuna úr heimasíma í heimasíma til þeirra 26 landa sem Íslendingar hringja langoftast í. Löndin eru Danmörk, Svíþjóð, Noregur, Bretland og N-Írland, Bandaríkin, Frakkland, Þýskaland, Spánn, Írland, Ítalía, Lúxemborg, Holland, Pólland, Portúgal, Austurríki, Belgía, Kanada, Kína, Ástralía, Tékkland, Andorra, Kýpur, Hong Kong, Singapúr, Taíland og Taiwan.

Það gæti varla verið einfaldara að nýta sér 1010-þjónustuna: Þú einfaldlega slærð inn “1010″ á undan landsnúmerinu í stað þess að slá inn “00″ og kostnaðurinn við símtalið lækkar. Ekki þarf að skrá sig í þessa þjónustu – þú þarft bara að vera viðskiptavinur Vodafone. 1010 virkar bæði fyrir heimasíma og farsíma í áskrift. (Ath – 1010 virkar ekki hjá þeim sem eru með Frelsi).

Það er misjafnt hversu mikið kostnaðurinn lækkar þegar 1010 er notað, en sem dæmi má nefna að með því að nota 1010 lækkar mínútuverðið fyrir símtal til Danmerkur úr heimasíma í heimasíma úr 20,90 kr. í 8,90 kr. – ríflega 57% lækkun!

Það munar um minna – sérstaklega fyrir þá sem ætla að hringja í ættingja og vini í jólamánuðinum. Skoðaðu nánar verðskrá útlandasímtala úr heimasíma og farsíma – þar sést greinilega hversu mikið þú sparar með 1010.

Athugasemdir

athugasemdir

Copyright © Vodafone    Skútuvogi 2    104 Reykjavík    Sími 599 9000    Fax 599 9001    Þjónustuver sími 1414    Hafðu samband    Skilmálar þjónustu

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn