Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Ánægja með gagnamagnsþak erlendis

Vodafone hefur frá apríl síðastliðnum komið í veg fyrir að viðskiptavinir á ferð erlendis fái óvænt of háa reikninga vegna gagnamagnsnotkunar farsíma. 50 evru gagnamagnsþak hefur mælst vel fyrir hjá viðskiptavinum.

Vodafone innleiddi gagnamagnsþakið í byrjun þessa árs þegar fór að bera á því að viðskiptavinir væru að sækja mikið af gögnum í gegnum farsíma sína á ferðalögum erlendis en gerðu sér ekki grein fyrir kostnaðinum sem því fylgdi. Gagnamagnsþakið er virkt hvort sem viðskiptavinur tengist í gegnum síma eða 3G netbúnað.

Ánægja viðskiptavina hefur verið mikil með þjónustuna í þá átta mánuði sem hún hefur verið í boði. Margir hafa haft samband við okkur og þakkað fyrir, því þegar þeir fengu SMS um að 80% af 50 evru þakinu væri náð höfðu þeir verið grunlausir um að kostnaðurinn við gagnaniðurhal erlendis væri svo fljótur að safnast upp. Ef ekki hefði komið til þaksins hefði kostnaður þeirra því orðið mun hærri en þeir bjuggust við.

Þeir sem þurfa á mikilli gagnamagnsnotkun erlendis að halda geta að sjálfsögðu hækkað þakið eftir hentugleika. Vodafone lætur vita með SMS þegar 80% af verðþakinu hefur verið náð og viðskiptavinum er boðið að hækka þakið hafi þeir þörf fyrir það.

Þú getur lesið meira á gagnaþakssíðunni og einnig hvetjum við alla sem eru á leið erlendis til að kynna sér sparnaðarráð Vodafone á ferðalögum erlendis áður en lagt er af stað. Við minnum einnig á daggjaldið erlendis, sem viðskiptavinum Vodafone býðst hjá ákveðnum erlendum símafyrirtækjum, en það hentar sérstaklega vel ef nota þarf gagnamagn mikið á ferðalögum erlendis. Jafnframt má finna allt um verð á símtölum og gagnamagnsflutningum erlendis á útlandasíðunni.

Athugasemdir

athugasemdir

Copyright © Vodafone    Skútuvogi 2    104 Reykjavík    Sími 599 9000    Fax 599 9001    Þjónustuver sími 1414    Hafðu samband    Skilmálar þjónustu

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn