Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Útsending erlendra stöðva hafin

Nú er útsending hafin á hinum nýja sjónvarpsstöðvapakka Vodafone Erlendar stöðvar til þeirra Gull-viðskiptavina Vodafone sem hafa pantað áskrift.

Sjónvarpsstöðvarnar ættu að koma sjálfkrafa inn hjá viðskiptavinum sem eru með sjónvarp í gegnum ADSL eða ljósleiðara. Hafir þú pantað áskrift og sérð ekki stöðvarnar gæti þurft að endurræsa myndlykilinn, en það er gert með því að taka hann úr sambandi við rafmagn í stutta stund.

Þeir sem eru með sjónvarp í gegnum örbylgju og hafa pantað áskrift þurfa að framkvæma nýja stöðvaleit. Á hjálparvefnum okkar eru nánari upplýsingar um stöðvaleit.

Stöðvarnar munu verða á rásum 101 til 106 og er röðin þessi:

101 DR1
102 BBC Entertainment
103 JimJam
104 Discovery Channel
105 History Channel
106 Sky News

Eins og áður hefur komið fram er þessi sjónvarpsstöðvapakki veittur sem ávinningur fyrir Gull-viðskiptavini Vodafone og er áskriftargjald 395 krónur á mánuði. Því miður er ekki hægt að bjóða áskrift að þessum stöðvum til þeirra sem fá sjónvarpssendingar í gegnum UHF-kerfið (sjá nánar um þjónustusvæði sjónvarps). Eldri ávinningur er nú fallinn úr gildi og á næstu dögum mun lokast á þær sjónvarpsstöðvar sem buðust með honum.

Vodafone Gull viðskiptavinir geta skráð sig fyrir áskrift á Vodafone.is með því að nota vefslóð og kóða sem send var í tölvupósti eða hefðbundnu sendibréfi í lok október. Einnig er hægt að skrá áskrift með því að senda kennitölu rétthafa sjónvarpsáskriftarinnar og kóðann erlendar með SMS í númerið 1414. Að auki er hægt að hafa samband við þjónustuver Vodafone gegnum netspjallið eða með því að hringja í 1414.

Athugasemdir

athugasemdir

Copyright © Vodafone    Skútuvogi 2    104 Reykjavík    Sími 599 9000    Fax 599 9001    Þjónustuver sími 1414    Hafðu samband    Skilmálar þjónustu

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn