Meira niðurhal

Nú er enn einfaldara en áður að kaupa aukaniðurhal ef mánaðarskammturinn klárast. Þú pantar 10 eða 30 GB aukapakka á Mínum síðum og málið er leyst.
Þjónusta Vodafone á Mínum síðum er í stöðugri þróun. Nýjasta viðbótin er möguleiki á að kaupa aukaniðurhal fyrir netáskrift á einfaldan hátt. Til að gera það skráir þú þig inn á Mínar síður, smellir á „Internet“ og velur „Upplýsingar og áskriftarleið“. Á síðunni sem þá birtist smellir þú á hnappinn „Kaupa aukaniðurhal“.
Í boði eru tveir möguleikar, 10 GB á 1.000 kr. og 30 GB á 2.500 kr. Þegar keypt er aukaniðurhal verður það skuldfært á næsta reikning.Til viðbótar geta viðskiptavinir nú breytt áskriftarleið sinni á Mínum síðum sem er hentugt ef innifalið niðurhal er ekki í takti við notkunina. Það er gert á sömu síðu og aukaniðurhal er keypt. Áskriftarleiðabreyting tekur gildi næstu mánaðarmót á eftir og hefur ekki áhrif á yfirstandandi mánuð.
Hvers vegna aukaniðurhal?
Við erum stundum spurð að því hvers vegna viðskiptavinir þurfi að bera sig eftir því að kaupa aukaniðurhal ef farið er yfir mánaðarlegt hámark og sagt að það væri þægilegra að viðbótargagnamagn bættist sjálfkrafa við. Ólíkt því sem víða gerist viljum við hins vegar ekki leggja slíkan óumbeðinn kostnað á viðskiptavini. Við teljum eðlilegra að viðskiptavinir ákveði sjálfir hvort þeir vilja aukaniðurhal eða ekki.
Þess vegna beitum við þeirri aðferð að hægja verulega á erlendu niðurhali ef hámarki mánaðarins er náð. Innlend netnotkun helst eðlileg og enginn viðbótarkostnaður bætist við ef þú þarft ekki meira erlent niðurhal þann mánuðinn. Ef þú vilt hins vegar sækja meira af gögnum erlendis frá tekur þú sjálf/ur ákvörðun um það – við gerum það ekki fyrir þig. Við látum að sjálfsögðu vita með tölvupósti þegar 80% eru búin af gagnamagninu og svo aftur þegar allt gagnamagn mánaðarins er búið, þannig að ekki ætti að koma á óvart þegar hámarkinu er náð. Fljótlega verður einnig hægt að panta tilkynningu með SMS.
Athugið þó að í sumum tilvikum gætu þessir möguleikar ekki verið í boði. Til dæmis ef nettenging er greidd af öðrum en notanda, t.d. vinnuveitanda. Jafnframt eru ákveðnar áskriftarleiðir þess eðlis að einungis er hægt að breyta þeim í samráði við þjónustuver Vodafone. Ef þú ert á slíkri áskriftarleið sérðu skilaboð þess efnis á Mínum síðum í stað valmöguleikanna sem nefndir eru hér fyrir ofan.





























Athugasemdir