Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

1414 appið komið fyrir iPhone

Nú er 1414 appið loks orðið fáanlegt í App Store og þar með hægt að sækja það í iPhone, iPod Touch og iPad.

1414 appið fyrir iPhoneÞú getur sótt þér appið með því að fara á http://rautt.is í símanum (hlekkur inn í App Store er á forsíðunni) eða með því að skanna QR kóðann hér neðst á síðunni. Eins má skoða yfirlit yfir appið í vefútgáfu App Store.

Með 1414 appinu geta viðskiptavinir Vodafone fylgst með farsímanotkuninni, skoðað upplýsingar um inneign, vinanúmer og SMS í frelsi, breytt vinanúmerum, skipt um gagnamagnspakka og ýmislegt fleira.

Í appinu er einnig að finna dagskrá allra sjónvarpsstöðva sem sendar eru út í Vodafone Sjónvarpi. Þar með getur þú alltaf séð hvaða þættir eru hvenær hjá yfir 70 sjónvarpsrásum, íslenskum sem erlendum, í snjallsímanum þínum.

Að auki er hægt að panta símtal frá þjónustufulltrúum Vodafone í gegnum appið og senda fyrirspurn til 1414 – þjónustuvers Vodafone.

Þegar er þó tilbúin enn nýrri útgáfa, sem fer nú í samþykktarferli hjá Apple. Gera má ráð fyrir að uppfærslan verði samþykkt að viku liðinni. Með henni bætist við möguleiki á að sækja gleymt lykilorð úr appinu, fylla á frelsi og skoða færsluyfirlit fyrir númerið þitt.

Endilega sendu okkur ábendingar og athugasemdir á app@vodafone.is. Það er okkur fátt dýrmætara en ábendingar notenda sjálfra, þú skalt því ekki hika við að láta okkur vita hvernig þér finnst hafa tekist til. Mundu líka eftir að uppfæra appið í næstu viku – þá verður það orðið enn öflugra.

Athugasemdir

athugasemdir

Copyright © Vodafone    Skútuvogi 2    104 Reykjavík    Sími 599 9000    Fax 599 9001    Þjónustuver sími 1414    Hafðu samband    Skilmálar þjónustu

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn