Notkun 20-faldast

Breytingunni sem orðið hefur á gagnaniðurhali yfir farsímanetið á undanförnum árum má líkja við sprengingu.

Í ágúst sl. sóttu viðskiptavinir Vodafone 20 sinnum meira af gögnum yfir farsímanetið en í janúar 2009, sem jafngildir tvöföldun á u.þ.b. 7 mánaða fresti á tímabilinu. Langstærstur hluti notkunarinnar er vegna 3G nettengla, en með aukinni notkun snjallsíma af öllum stærðum og gerðum hefur gagnaniðurhal í símtæki aukist mikið.
Á myndinni hér til hliðar sést vel hversu hröð aukningin hefur verið frá ársbyrjun 2009.
Þótt hlutdeild snjallsíma fari vaxandi nota tiltölulega fáir slík tæki enn sem komið er, en það er að breytast hratt þessi misserin – ekki síst eftir að ódýrari snjallsímar fóru að bjóðast. Þá má búast við að sífellt fleiri muni nýta 3G nettenglana og tölvur (fartölvur eða spjaldtölvur) með slíkum búnaði innbyggðum.
Þessi þróun er sannarlega til marks um breytta tíma. Að sama skapi gerir hún kröfur um áframhaldandi uppbyggingu farsímakerfisins, því að óbreyttu mun kerfið ekki anna gagnaumferðinni þegar fram í sækir. Vodafone mun ekki láta sitt eftir liggja í þeim efnum enda höfum við einsett okkur að farsímakerfið okkar verði áfram það öflugasta á Íslandi.




























Athugasemdir