Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Mundu eftir Mínum síðum

Ný yfirlitssíða birtist í síðustu viku á Mínum síðum og fleiri nýjungar eru væntanlegar. Þar færðu yfirlit yfir öll þín viðskipti hjá okkur.

Nýr vefur Vodafone.is fór í loftið fyrir nokkrum vikum eins og margir hafa sjálfsagt tekið eftir. Við höldum áfram uppbyggingu og endurhönnun á þjónustu okkar á vefnum og er útlit og virkni Minna síðna eitt af því sem viðskiptavinir munu sjá breytast á næstunni.

Ný yfirlitssíða Minna síðna sýnir alla þjónustuþætti þína hjá Vodafone

Á nýju yfirlitssíðunni má sjá alla þá þjónustuþætti sem þú ert með hjá Vodafone á einum stað um leið og þú skráir þig inn. Þar á meðal sést gagnamagnið sem þú hefur notað í mánuðinum þannig að ekki er þörf á að kafa dýpra eftir þeim upplýsingum nema til að fá ítarlegt yfirlit. Með því að smella á þjónustuþættina fæst jafnframt yfirlit yfir þær aðgerðir sem boðið er upp á fyrir hvern þjónustuþátt.

Undirsíðurnar munu jafnframt verða endurhannaðar á næstunni með það fyrir augum að upplýsingar verði eins skýrar og kostur er, þægilegra verði að finna það sem leitað er að og auðveldara að stilla þjónustuna eftir eigin höfði.

Til að fullnýta kosti Minna síðna hvetjum við viðskiptavini til að sækja um fullgildan aðgang, en hann fæst með því að fá lykilorð sent í heimabanka. Sú skráningaraðferð er notuð af öryggisástæðum. Hér má sjá hvernig sótt er um fullgildan aðgang að Mínum síðum skref fyrir skref.

Við erum þess fullviss að eftir uppfærslu Minna síðna muni viðskiptavinir geta nýtt þær enn betur til að fá upplýsingar, stilla þjónustuna og fá meira út úr viðskiptum sínum við Vodafone. Endurhönnun á borð við þessa getur þó haft örlítið rask í för með sér. Einstaka villur geta skotið upp kollinum og hvetjum við notendur til að senda okkur ábendingar á vefurinn@vodafone.is ef eitthvað virkar ekki sem skyldi.

Athugasemdir

athugasemdir

Copyright © Vodafone    Skútuvogi 2    104 Reykjavík    Sími 599 9000    Fax 599 9001    Þjónustuver sími 1414    Hafðu samband    Skilmálar þjónustu

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn