Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Haltu tölvunni öruggri

Vodafone býður nú í samvinnu við Microsoft Íslandi vírusvörnina Microsoft Security Essentials, öfluga vörn gegn alls kyns tölvuóværu.

Microsoft Security Essentials er vírusvörn fyrir Windows-tölvur sem hönnuð er af Microsoft. Hún veitir rauntímavörn gegn vírusum, njósnaforritum og alls kyns annarri tölvuóværu auk þess sem með henni er hægt að skanna tölvuna og leita þannig uppi vafasöm forrit sem gætu dulist á harða diskinum án þess að notendur verði þeirra varir.

Vodafone býður viðskiptavinum að sækja vírusvörnina hér á Vodafone.is sér að kostnaðarlausu, en það er gert í samvinnu við Microsoft Íslandi. Þetta er gert til að auka tölvuöryggi og hvetja almenning til að huga vel að þessum málum. Það getur haft alvarlegar afleiðingar ef öryggismálum er ábótavant, því viðkvæm gögn geta glatast eða þeim verið stolið, heimilistölvur geta verið notaðar í vafasömum tilgangi svo sem til útsendingar ruslpósts án vitundar eigenda, óæskilegu efni getur verið otað að notendum við netvafur, vinnslugeta tölvunnar getur minnkað verulega og svo mætti lengi telja.

Við undirskrift samninga Microsoft Íslandi og Vodafone um dreifingu Microsoft Security Essentials sagði Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi: „Það er ánægjulegt að Vodafone hvetji fólk til að huga að öryggi við tölvunotkun og aðstoði viðskiptavini við að verja tölvur sínar. Um leið erum við hjá Microsoft Íslandi stolt af því að Vodafone velji Microsoft Security Essentials til þessa verkefnis. Frá því Security Essentials kom fyrst út hefur lausnin unnið til fjölda viðurkenninga fyrir að vera öflug, en um leið einföld í notkun og við erum því fullviss um að hún muni koma viðskiptavinum Vodafone að góðum notum.“

Smellið hér til að lesa meira um Microsoft Security Essentials og hala niður forritinu.

Athugasemdir

athugasemdir

Copyright © Vodafone    Skútuvogi 2    104 Reykjavík    Sími 599 9000    Fax 599 9001    Þjónustuver sími 1414    Hafðu samband    Skilmálar þjónustu

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn