Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Góðir kostir fyrir námsmenn

Námsfólk sem hefur setu á skólabekk á ný kemur ekki að tómum kofunum hjá Vodafone. Ýmsar þjónustuleiðir okkar henta vel fyrir þá sem þurfa að vera vel tengdir en halda kostnaði í lágmarki.

Margir námsmenn hafa kosið að sleppa því alfarið að hafa heimasíma en þurfa engu að síður góða nettengingu. Þá er hægt að velja ADSL án heimasíma, en í þeim tilvikum leggst 500 kr. aukagjald á nettenginguna, sem er engu að síður ódýrara en að vera með bæði heimasíma og ADSL.

Að sjálfsögðu þarf þá að hafa í huga að símtöl úr heimasíma í heimasíma eru jafnan hagkvæmustu símtölin þannig að ef hringt er mikið í heimasíma borgar sig ekki að sleppa honum. Eins er umtalsvert hagkvæmara að hringja til útlanda úr heimasíma og má þá sérstaklega nefna að ef notað er forskeytið 1010 í stað 00 áður en erlenda númerið er slegið inn fæst enn betra verð á útlandasímtölum. Með 1010 er t.d. hringt úr heimasíma til 15 helstu viðskiptalanda Íslands fyrir einungis 8,90 kr. mínútuna. Nánar um útlandasímtöl hér.

Annar kostur sem ýmsir nýta sér er að sleppa alfarið landlínunni og nota einfaldlega 3G-net sem aðalnettengingu heimilisins. Þá er 3G nettengill eða annar netbúnaður notaður til að nettengjast og keyptur gagnamagnspakki sem hentar.

Nettenging fyrir Háskóla Íslands

Nemendur og starfsfólk Háskóla Íslands hafa möguleika á að fá internetþjónustu hjá Reiknistofnun HÍ, en Vodafone býður ADSL-línuna sem nauðsynleg er til að nýta þessa þjónustu hjá RHÍ. Þeir sem vilja fara þessa leið við nettengingu geta valið milli ADSL 0, sem er 6 Mb/s tenging án gagnamagns og 8 Mb/s ADSL án gagnamagns, sem kostar meira, en er nokkuð hraðvirkari. Báðar þessar tengingar veita möguleikann á Sjónvarpi Vodafone um ADSL.

RHÍ krefst þess að þeir sem tengjast á þennan hátt útvegi sinn eigin netbeini. Einn möguleiki er að leigja beini hjá Vodafone, sem kostar 450 krónur á mánuði. Nánari upplýsingar um verð má finna á verðskrársíðu ADSL-tenginga Vodafone. Á vef RHÍ má jafnframt finna ítarlegrar leiðbeiningar um nettengingar starfsmanna og nemenda Hí. Athugið að hér er ekki verið að tala um nettengingar á stúdentagörðum HÍ. Þær eru ekki á vegum Vodafone og því miður er ekki hægt að fá sjónvarp Vodafone um þær.

Hafðu samband!
Ef þú hefur einhverjar spurningar skaltu ekki hika við að hringja í 1414. Þar eru ráðgjafar okkar ávallt tilbúnir til að aðstoða námsmenn sem og aðra við að finna þær þjónustuleiðir sem henta best.

Athugasemdir

athugasemdir

Copyright © Vodafone    Skútuvogi 2    104 Reykjavík    Sími 599 9000    Fax 599 9001    Þjónustuver sími 1414    Hafðu samband    Skilmálar þjónustu

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn