Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Betra samband í Húnavatnssýslu

Síðustu daga hefur GSM samband Vodafone verið bætt umtalsvert í Húnavatnssýslu. M.a. fá nú nokkrir bæir GSM samband í fyrsta skipti.

Þrjár GSM-stöðvar hafa verið settar upp sem bæta GSM samband Vodafone víða í Húnavatnssýslu. Ný GSM-stöð á sunnanverðu Vatnsnesfjalli (Grenjadalsfell) bætir verulega sambandið á þjóðvegi 1 milli Blönduóss og Miðfjarðar og stór svæði þar í kring t.d. við Hópið og inni í Miðfirði.

Önnur stöð í sunnaverðum Vatnsdal kemur nokkrum bæjum, sem aldrei hafa notið GSM sambands áður, í gott Vodafone-samband og hefur það mælst mjög vel fyrir hjá íbúum á svæðinu.

Þriðja stöðin er á Hnjúk í norðanverðum Vatnsdal. Með henni tryggjum við samfellda dekkningu á okkar kerfi á þessu svæði. Með henni fá nokkrir bæir til viðbótar betra GSM samband, sem ýmist hafa ekki verið með GSM samband áður eða hafa verið með mjög takmarkað samband.

Innan rauðu línanna eru svæðin þar sem líkur eru á bættu GSM sambandi.

3G svæðið stækkar ört
Einnig má nefna að 3G svæði Vodafone hefur stækkað hratt síðustu mánuði og ýmis þéttbýlissvæði hafa bæst í hóp þeirra sem eru innan 3G þjónustusvæðis Vodafone. Frá áramótum hafa Vík, Kirkjubæjarklaustur, Patreksfjörður, Ísafjörður, Bolungarvík, Varmahlíð, Ólafsfjörður, Grenivík, Seyðisfjörður, Neskaupstaður, Eskifjörður, Reyðarfjörður og Fáskrúðsfjörður fengið 3G samband. GSM- og 3G-þjónustusvæði Vodafone má sjá á korti hér (tengill á útbreiðslukort Vodafone.is).

Þess má geta að þar sem 3G þjónusta er ekki í boði er samt sem áður hægt að komast á netið í símanum (eða með nettengli) í gegnum GSM kerfið. Allar GSM stöðvar Vodafone bjóða upp á allt að 230 Kbps netsamband með E-GPRS eða EDGE tækninni. Slík tenging dugar fyrir flest almennt netráp (t.d. Facebook,fréttavefi o.þ.h.) og tölvupóst en nýtist síður til að streyma tónlist eða myndböndum.

Athugasemdir

athugasemdir

Copyright © Vodafone    Skútuvogi 2    104 Reykjavík    Sími 599 9000    Fax 599 9001    Þjónustuver sími 1414    Hafðu samband    Skilmálar þjónustu

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn