Símaforrit fyrir skólann

Það vita það kannski ekki allir, en það er hægt að nota snjallsímana í meira en að spila Angry birds! Fjölmörg farsímaforrit geta meira að segja nýst við námið.
Þarftu að halda utan um minnispunkta? Þýða stutta texta? Geyma gögn og hafa þau aðgengileg í bæði tölvu og farsíma? Halda utan um heimanámið? Eða bara lífga upp á daglega lífið með því að leysa þrautir? Þá geta þessi snjallsímaforrit komið að góðum notum:
Evernote er einnig minnismiðaforrit í grunninn, en með því er hægt að halda utan um fjölbreyttari gögn og upplýsingar, svo sem verkefnalista, myndir, hljóðupptökur og fleira.
Með myHomework skipuleggur þú heimanámið, skráir inn verkefnin sem sett eru fyrir og skiladaga og hefur þannig fulla yfirsýn yfir vinnuna framundan.
Dropbox er frábær leið til að geyma gögn á netinu þannig að hægt sé að nálgast þau úr hvaða tölvu sem er eða deila með vinum. Dropbox-snjallsímaforritið gerir þér kleift að sækja þessi gögn í símann líka.
Google translate er einföld útgáfa af þýðingarþjónustu Google á netinu. Skrifaðu inn setningu á hvaða tungumáli sem er og flettu upp hvað hún þýðir – eða hvernig á að skrifa hana á hvaða tungumáli sem er! Android-útgáfa; iPhone-útgáfa.
Scvngr er að verða sífellt vinsælla. Með því skipuleggurðu ratleiki eða leysir þrautir sem búnar hafa verið til.
Hér finnur þú meiri upplýsingar um símaforrit almennt og hvernig hægt er að skanna inn hraðkóða.




























Athugasemdir