Enn eflist 3G net Vodafone

Nýir 3G-sendar Vodafone spretta upp eins og gorkúlur þessa dagana og þar með fjölgar enn þeim stöðum þar sem viðskiptavinir Vodafone komast í háhraða netsamband.
Nýir 3G-sendar Vodafone spretta upp eins og gorkúlur þessa dagana og þar með fjölgar enn þeim stöðum þar sem viðskiptavinir Vodafone komast í háhraða netsamband, hvort sem það er í gegnum farsímann eða aðrar 3G-þjónustuleiðir. Í júní hafa bæst við sendar í Borgarfirði sem efla sérstaklega 3G-sambandið í sumarbústaðahverfum nálægt Svignaskarði og einnig í grennd við Húsafell, sem þýðir að 3G-samband er nú til fyrirmyndar ‘upp undir Eiríksjökli‘ eins og skáldið sagði.
Nýr 3G-sendir á Flúðum var jafnframt settur upp í byrjun mánaðarins. Þar með býðst nú öflugt 3G-samband í þéttbýlinu þar og nærliggjandi sumarhúsasvæðum.
Nýjustu sendarnir voru svo gangsettir í vikunni á suðurströndinni, annars vegar í Vík og hins vegar í Kirkjubæjarklaustri. Fleiri sendar eru væntanlegir á næstu vikum – við segjum nánar frá því hér á blogginu þegar þeir fara í loftið.
Kort af heildarútbreiðslu 3G-dreifikerfis Vodafone má finna hér. (Nýjustu svæðin sem nefnd eru hér að ofan birtast á kortinu á næstu dögum).




























Athugasemdir